Fæddur til að veiða, neyddur til að vinna
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 26 janúar
Dagsetning
9. febrúar 2012
23.01.2007 09:14:38 / hafsteinn

jájá...ég veit

Sæl öll.

Langt síðan ég skrifaði hér inn. Kominn tími á mig. Þetta helst í fréttum.....

Sjónvarpið okkar dó...vúbbdííídúúú....immitt....Guðrún heimalningur var svo elskuleg að lána okkur sjónvarp þannig við gátum horft á landsleikinn í gær...þetta var bara ansi gott hjá þeim.

Horfði á CSI í gær....fór að pæla...þegar þessar hetjur eru að leita að blóði eða vökva úr karl líkamanum á rúmum og öðru.....þá eru þau með svona fjólublátt ljós og setja upp þessar þvílíku ljótu appelsínugulu gleraugu til geta séð hvort eitthvað sé þarna....og viti menn, þau sjá alla blettina.....eeeeeeeeen....við sjáum blettina líka !!!

TIL HVERS ERU ÞAU AÐ SETJA UPP ÞESSI ASNALEGU GLERAUGU ????

ekki er það til að fylgja nýjustu tískunni, það er á hreinu...

jæja....smá pæling bara...smá upphitun fyrir 2007

heyrumst


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 16:17:44 / hafsteinn

barn fætt

Sælinú.

Maður er bara á bleiku skýji þessa dagana því á aðfangadagsmorgun eignuðumst við Fanney okkar fyrsta barn :D Þeim mæðgum líður alveg ágætlega og er sú stutta með fína matarlyst, svona rétt eins og pabbi sinn hehe ;)

Bestu jólakveðjur til ykkar allra héðan úr Einholtinu.

Leiter


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 23:20:52 / hafsteinn

ég skal ! ég skal !

fyrst það er ekkert að gerast, þá ætla ég að.....

Ég kom klukkan tólf einn á ballið til í knallið, fór inná bar og settist þar,

drakk og drakk, fór á flakk, það kostar tvö að koma sér í stuð.....ég er einn í kvöld...

úúhhhúúuuuuúúúú  einn dans við mig !!

Klukkan eitt fylltist gólf, Siggi, Kalli, Gummi, Njalli, Valli ljósafata matagat

og fleiri komu en ég sat....ég reynd’að drekka í mig kjark, jeg pige har !!!

úúúúúhhhúúúuuuuúúúú það var minn tilgangur og mar !

einn dans við mig, einn dans við mig, einn dans við mig, mig, mig, mig, mig

einn dans við mig..... úúhhhúúuuuuúúúú  einn dans við mig

Á mig sveif lalala Sigga, Magga, Rut og Ragga Stína, Dagga, Gunnþór upp um allann sal

ég skal ! ég skal !

og svo var klukkan orðin tvö, nú fer ég í stuð !!

ég fæ mér einn og öskra möööö !!!

einn dans við mig, einn dans við mig, einn dans við mig, mig, mig, mig, mig

einn dans við mig..... úúhhhúúuuuuúúúú  einn dans við mig

Inn á bar, tómt þras og mas við að ná í glas,

“halló beibí hvar er kallinn þinn í kvöld ? ertu ein ??!! við skulum kýl’á svoldið gas

úúhhhúúuuuuúúúú  einn dans við mig

Sóló

úúhhhúúuuuuúúúú

einn dans við mig, einn dans við mig, einn dans við mig, mig, mig, mig, mig

einn dans við mig..... úúhhhúúuuuuúúúú  einn dans við mig !!

Klukkan korter í þrjú, stend ég upp, spá’í frú, ég er fær í flestan sjó

hef drukkið nóg, markmiðið er....að fá píu heim með sér.....

úúhhhúúuuuuúúúú  einn dans við mig !!

einn dans við mig, einn dans við mig, einn dans við mig, mig, mig, mig, mig

einn dans við mig..... úúhhhúúuuuuúúúú  einn dans við mig !!


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 13:29:06 / hafsteinn

ekkert að gerast....

hæ hæ

það er nú lítið að frétta úr One Tree Hill þessa dagana. Við erum bara að bíða eftir að barnið sé tilbúið að láta sjá sig. Úff....held það verði þrjóskari en :klikk: hehe

Fór í STÆ próf á mánudaginn og það gekk bara ljómandi. Næst á dagskrá er að klára heimasíðu sem ég á að skila 18. des. Það hlýtur að reddast hehe

Vorum að opna barnalandssíðuna fyrir krílið

http://www.barnaland.is/barn/52987

Annars lítið að frétta

leiter


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 09:05:52 / hafsteinn

konur eru pirraðar oft á tíðum !

sælinú

svosum lítið að frétta af manni, við fórum á jólahlaðborð á lau. á Pengs. Það var öðruvísi en fínt samt. Eftir það fórum við á Græna “eitthvað”....man aldrei nafnið..... þar var Rögnvaldur Gáfaði með uppistand. Troðfullt útúr dyrum og ekki brást honum bogalistin frekar en fyrri daginn....úfff....við hlógum í 2 klst. samfellt. Hann er ekkert eðlilega fyndinn. :P

Ég var nánast pottþéttur að FBP færi bara af stað en ekki gerðist það. :$ Það er svosum kannski of snemmt að fara bíða en í dag á hún 7 daga eftir mv. sónar ofl. Ég vona að það fari að koma bara...allt klárt heima og við nokkuð spennt. Vorum að skreyta í síðustu viku og þrífa.

Næst á dagskrá er að klára þetta stæ. próf sem ég er að fara í á mán. Ætli maður byrji ekki í kvöld að undirbúa sig....ég er nú ekkert ógurlega stressaður, ætti að ná þessu held ég en betra að vera vel undirbúinn og rúlla þessu upp ;) svo á ég að skila heimasíðuverkefni 18. des. í HTN og á að nota FrontPage. 

Er einhver þarna úti sem er góður á það ?

Hvað finnst ykkur um gaurinn sem ók í gegnum girðinguna á kef. flugv. HAHAHAHAHA þvílíkur snillingur....útskýringin var "ég var víst að missa af vélinni"... bara með 4 löggubíla á eftir sér og ákveður..."hnmm... ég náttlega kemst undan ef ég keyri inná flugvöll og fel mig í flugvélinni..."  iiiiiimmmiiittt.... svo var vallarstarfsmaður spurður af æsifréttamanni stöðvar 2 "er þessi girðing nokkuð nógu traust til að koma í veg fyrir að fólk keyri bara inná flugbrautina??!!" "nógu traust ? hún er alveg skv. reglugerðum"..... eins og það gerist bara á hverjum degi að fullur kall með 4 löggubíla á eftir sér keyri í gegnum girðingu og reyni að flýja....immitt....djöfulsins snillingur....hvenær ætli hann hafi hugsað "já....þetta er bara að takast hjá mér !" svo eitt....hvernig vissi hann hvaða vél hann átti að velja ??? snilld ef hann hefði komist í vélina og svo hefði hann heyrt flugstjórann segja "ggggt...góðann dag, þetta er flugstj. sem talar.  Áætlaður flugtími til Ísraels verður 15 tímar....gggggt"..... snillingur :lol:

 

Svosum ekki neitt annað að frétta, heyri í ykkur seinna

HL


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 09:10:09 / hafsteinn

Prins Póló

Tekið af mbl.is

"Búið er að ráða pólskukennara til að kenna pólskum börnum í grunnskólanum á Ísafirði og grunnskóla Önundarfjarðar, en brotalöm hefur verið á því að pólskir nemendur fengju kennslu í sínu móðurmáli. Þetta kemur fram á fréttavefnum Bæjarins besta."

iiiiiiiimmmmmmmmmmmiiiiiiiiiiiitttt !!!

jæja....eigum við ekki bara að leggja niður sjálfstæðið sem við börðumst svo hatramlega fyrir 1944 og afhenda Póllandi lykla af landinu ??


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 14:28:25 / hafsteinn

viltu heyra brandara.....fáðu þér standara

endilega takið þátt í nýrri skoðunarkönnun...

eníveis.....heyrði einn helv. góðann í dag......læt hann flakka...

Það voru 3 verkamenn að vinna fyrir Impreglio á Ítalíu. Þetta voru Bandaríkjamaður, Pólverji og Íslendingur. Þeir voru staddir uppi á risabyggingu og voru að metast.

Bandaríkjamaðurinn henti dollururm fram af byggingunni og sagði "iss..við eigum nóg að þessu í mínu heimalandi !!"

Pólverjinn tók þá upp kassa af Prins Póló og henti fram af byggingunni og sagði "iss...við eigum nóg að þessu í mínu heimalandi !!"

Þá tók Íslendingurinn Pólverjann og grýtti honum fram af byggingunni og sagði "iss... við eigum nóg af þessu í okkar heimalandi !!"

HAHAHAHAHAHA.....snilld


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 23:10:25 / hafsteinn

fiskastríðið í fluðruskógi

jamm jamm

ætla nú ekki að koma með umræðu strax....ég held þið séuð ekki tilbúin í það. ætla samt að skrifa nokkrar hugsanir hér á netið.....

íslenski X-factor...eru þið að grínast í mér....fullt af gömlu fólki sem saknar þess greinilega að vera í öskudagsliði !!! úffff.....vantaði bara kúrekahattinn og feik skeggið á suma og þá hefði palli líklegast gefið þeim nammi í poka....stórkostlegt sjónvarpsefni.

annað í fréttum....mér sýnist það stefna í stríð í fiskabúrinu mínu. Þar er Eldhali Konungur alls sem ræður ríkjum. Hann er greinilega orðinn frekar þreyttur á öðrum fiskum og mér sýnist þeir ekki eiga mjög bjarta framtíð...allavega ekki ef þeir halda sig nálægt honum. Svo eru þessi grey alltaf svo minnug....synda alltaf á banvæna staðinn og þar bíður killerinn og það endar í mjög fjörugum eltingaleik.

Annars allt í rólegheitum hér... var að vesenast með jólamatinn handa okkur Fanney í dag... vorum með hreindýr á aðfangadag í fyrra. okkar fyrsta aðfangadag saman hehe... var svo hrikalega gott að við ákváðum að hafa þetta bara alltaf.....nema hvað.....sá Rúdólf á tilboði í Nóatúni fyrir sunnan. ég hringdi og tékkaði betur á þessu og fékk sendar 1,8 kg. Rúdolf lundir í flugi í kvöld hingað til Ak. já tekk....ætla elda þetta á aðfangadag handa okkur þremur....já þremur ! sú litla verður komin í heiminn þá !! hehe

Fanney hætt að vinna, það er fínt...orðin ansi þreytt þessi elska....vaknar samt alltaf með mér til að sparka mér framúr rúminu og eldar svo hafragraut handa okkur....tuðar og tuðar hvað ég er að verða seinn....þetta er bara eins og heima hjá mömmu hér í gamla daga.....aaaaaahhhhhhhh the sweet life... hún er bara ansi vel upp alin þessi elska... enda komin af þessu líka fræga Svertingsstaðaættarbóli.... hún er nú voða mikið stolt að vera frá þessu kyni....enda allt í góðu með það...góð gen er það ekki Gunnfríð genasérfræðingur ??? ansi verður öflugt að blanda saman Svertingsstaðargenum og Molastaðargenum....ussss....það er bara B O B A !! Þetta verður SvertingjaMoli !!! hahahaha

Takk öll þið sem eruð búin að svara könnunni minni.......immitt.....það er eeeeeeenginn búinn að svara.....:^) ég ætla bara að skipta um skoðunarkönnun.

jæja....ætla hætta áður en King EH slátrar litlu ryksugunni minni....sýnist hann vera ansi tens þessa dagana....hlýtur að vera á blæðingum eða eitthvað....kannski er hann bara kynþáttahatari HAHAHAHAHAHA

leiter


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 16:10:28 / hafsteinn

á meðan laufin sofa liggja spaðarnir andvaka..

jæja jæja nú er veisla !!

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa skrifað sína skoðun á spjallið mitt. Þetta er nýtt met !

Takk takk allir, já allir...hvort þið séuð á sömu skoðun og ég eða ekki. Frábært að heyra í ykkur ÖLLUM ;-) 

 

Ég setti þetta inn sem smá áskorun og ég fékk sko góð viðbrögð. Fólk hefur nefnilega ekkert verið of duglegt að skrifa comment inná síðuna mína og þetta virkaði svona ljómandi vel. Þeir sem þekkja mig vita að ég hef ansi svartan húmor  múúhahahahaha

Ég held samt að umræðan snúist samt ekki endilega um einhverja fordóma. Það er alveg á hreinu að þessi uppsveifla sem er í gangi núna kallar á meira vinnuafl og í okkar tilfelli, erlendu vinnuafli. Ég er bara ansi hræddur um að við munum fá sprengju af útlendinga hatri þegar það mun koma niðursveifla hér á Fagra Ísafoldi og minni atvinnu verður að fá.

Það er ekki hægt að byggja endalaust og þetta vinnuafl er aðallega í fiski og byggingarvinnu og það mun koma niðursveifla í byggingariðnaðinum.

Það fólk sem hefur komið hingað til að vinna sættir sig oftar en ekki við lægri laun en íslendingar sem vinna sömu vinnu. Hvað gerist þegar þarf að segja mönnum upp útaf minnkandi atvinnu ?  Tek dæmi..

Verktaki í byggingariðnaði hefur 2 menn í vinnu. Útlendingur með 700 kr. á tímann og íslending með 1.300 kr. á tímann.  Þessir menn eru jafnduglegir. Hann verður að reka annann til að halda sinni starfsemi áfram. Mv. sjónarmið yfirmannsins ætti hann að halda útlendingnum og reka íslendinginn.

Eðlilegt mv. rekstur fyrirtækis.

Þetta mun held ég skapa mikla reiði og þetta svokallaða útlendinga hatur mun verða enn meira en það er í dag. Þannig er það bara. Þetta er raunveruleiki allt í kringum okkur.

Ég er líka hræddur um að launin fyrir ófaglært fólk muni lækka og hlunnindi og annað sem fólk í þessari stétt hefur barist fyrir í óralangann tíma verði í hættu. Þá er ég að tala um frídaga, vinnustundir, aðbúnaður, laun ofl. einfaldlega útaf því að það kemur fólk sem sættir sig við að vinna við þessar aðstæður.  Það mun líka skapa reiði.

Svo finnst mér pínu skrítið í allri þessari umræðu að sumir segja að það séu ekki útlendingarnir sem eru að lækka launin heldur ísleningarnir ???? wott ?? hafið þið einhverntíman talað við íslending sem segir “úfff.....ég er nú bara með aaaallt of há laun”

immitt

Ég er sammála því að fólk eigi að fá fría íslensku kennslu. Það á bara að vera skylda.

Þetta er hitamál og það er alveg á hreinu að það eru ekki allir sammála, enda væri lífið ansi leiðinlegt ef allir væru sammála og það væri ekkert hægt að tuða yfir neinu  

;-) hehe við höfum jú réttinn til að hafa okkar skoðun á hlutunum sem betur fer.

Haldið endilega áfram að skrifa comment, hef mjög gaman að lesa bullið í ykkur ;-)

En nóg af útlendingunum.....bíðið spennt eftir næstu umræðu !!

leiter,

Hoffana


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 03:00:45 / hafsteinn

ísinn út eða inn ?

jagshemash !!

"my name a borat and i come from Kazakhstan"

er þetta ekki orðin ansi fræg setning ?....... sko ég fíla Borat og allt það...eeeeeen... útlendingar......úff....ég hef aaaansi góðar skoðanir á þessu líferni.... það eru sumir sem eru voða hrifnir af öllu þessu erlendu fólki og sumir ekki þannig ég segi ekki neitt fyrr en ég sé útkomu úr næstu skoðunarkönnun....þið sem viljið að ég segi "MÍNA" skoðun á þessu máli SPEAK UP !

ansi viðkvæmt mál í hugum sumra eeeeeeeen ekki í mínum huga.......svara skoðunarkönnun please......þá kemur næsta færsla !!


» 21 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 19:36:00 / hafsteinn

eitt lag enn

jagshemash !!

jæja, þá er komið að færslu. var að læra, og ákvað hmm...væri ekki bara fínt að skrifa í dæmið á netinu jebbs

Vorum á árshátíð hjá Póstinum á hóteli Ísl., sem var bara fínt. Fannst svosum veislustjórinn ekkert spes, það var Skari skrípó, sem ég held að hafi villst því hann var bara með töfrabrögð og eitthvað bull. Hann hlýtur að hafa átt að fara í barnaafmælið við hliðina. Jólahvað ?? Svo kom einhver dansflokkur á sviðið....þær voru í rauðum og svörtum spandex göllum immitt...ég skildi það atriði ekki. Sigga  Beinteins. var næst....já...hún átti að vera Tína Törner 8| ....Baggalútur voru helv. góðir "Farð´að snyrta þig að neðan kæra vina því að ég er kominn heim !!"

Svo tjúttuðum við aðeins, fórum upp og þar var Lúdó og Stefán... þeir voru nýkomnir úr pásu og voru að gera sig klárir. Við útá gólf og ég segi dálítið hátt "einn, tveir, einn tveir þrír fjór" og hljómborðsleikarinn byrjaði að spila "glarmglarm" og allir stóðu og horfðu á hann HAHAHA snilld :lol: Stefán var víst ekki sáttur og ég fór að leita að þessum Lúdó...þeir vildu ekki kannast við hann...nú sagði ég...er þetta ekki Lúdó og Stefán...eða var það Stefán sem ég fann ekki ? 8| ææii... ég man það ekkert, Fanney veit það, þið spyrjið hana bara.

En þetta var helv. gaman, en rútuferðin heim daginn eftir ekkert sérstök.  Takk fyrir svörin við skoðunarkönn. minni. Og sérstaklega þú sem kallaðir mig asna !! og þú sem kemur ekki inná síðuna mína !!! Tjenghví !!

en hér kemur niðurstaðan.....fer að henda inn nýju dæmi.....leiter

  

ok..hér kemur ekki niðurstaðan því þá fer allur textinn minn í fokk....


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 22:17:25 / hafsteinn

fæ mér einn og öskra mööööö

jagshemash !!

jæja

svosum lítið búið að gerast síðan síðast....bara vinna og skóli...ekkert spennandi.

Lennti í ansi skemmtilegum rökræðum í vinnunni í dag. Vorum eitthvað að ræða hvað væri að vera svalur.  Ég sagði að maður væri svalur ef maður myndi leigja dverga til að opna fyrir sér hurðir. 8) Neeeee....þá varð allt vitlaust....að leigja dverg væri bara ógeðslegt og fordómafullt... hmmm...af hverju ??!! þurfa dvergar ekki vinnu eins og við hin ?? jú...immitt..ömm.. kannski á hálfum taxta samt en..... neinei....þetta fannst konunum í vinnunni frekar ósmekklegt....að leigja dverg....ég sagði bara svona í gríni... hmmm já...það væri svalt að vera með dverg í bandi....þá varð nú allt vitlaust...DVERG Í BANDI ????!!! "hvaða pervert er þú ??!!!" pervert ?? er maður pervert ef maður er með dverg í bandi ??? 

ég myndi frekar segja að maður væri pervert ef maður væri með uppblásna kind í bandi og ekki á leið á grímuball......  "en ef dvergurinn væri með svona gaddaól um hálsinn ???"   þá labbaði ein útaf kaffistofunni... hahahaha :klikk:

af hverju fá þeir sem eru blindir ekki dverga ??? af hverju hunda ?? væri ekki betra að vera með dverg í bandi og þá gæti hann sagt "heyrðu félagi...það er hægri beygja" eða "obb bobb bobb....það er rauður kall".... en í staðin þarf að þjálfa hunda í mörg mörg ár og síðan þarf blinda fólkið að læra að kommunikeita við kvikindin....voff voff "haaaa er bíll ??... voff voff.... hmm grænn kall segirðu ???"

já.....þetta var ansi skemmtilegur dagur í vinnunni skal ég ykkur segja og ekki fannst mér leiðinlegt þegar allir voru mér ósammála um að leigja dverg væri hin mesta skemmtun.

þangað til næst.....

leigið ykkur dverg og hafið gaman af því !!


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 21:17:22 / hafsteinn

jeje

jagshemash !!

jájá....hef ekki bloggað í langann tíma, búið að vera nóg að gera. fór í stæ. próf á lau. síðasta og fékk 8,6 8) nú er ég að reyna herða mig upp í að fara læra....er ekki alveg að nenna því. héðan er allt gott að frétta, líðan á fanney er bara ansi góð. er mikið þreytt en það er bara eðlilegt.  ég er búinn að gefa henni draumastólinn minn í óákveðinn tíma...hehe... það fer svo rosalega vel um hana í stólnum þannig ég er bara á sófanum á meðan. ég fæ hann fyrir rest....horfi að vísu stundum á fussball með öl í hendi þegar vel liggur á :haha:

framundan er vinnuvika í skólanum, á morgun (fim), fös og lau.  fjarnemum er boðið í "vísindaferð" í Norðlenska á fös.....ætla nú að kíkja á það :D svo erum við að fara í heljarinnar afmælisteiti á lau.....stanslaust stuð...paparnir eru víst í sjallanum og aldrei að vita nema við kíkjum þangað ef við erum í stuði.  ætlum líka að reyna koma svefnsófanum okkar og skápnum sem eru inní aukaherb. til hafeyjar....hún ætlar að taka þetta og er víst orðin ansi spennt...hehe búin að mæla allt út og ætlar að punta frystikistuna og eitthvað....ekta hafey sko....hún sagði "iss..það tekur mig nú ekki langa stund að snúa einu herbergi við" hahaha það er nokkuð satt því hún er eins og stormsveipur þegar hún byrjar. er að vísu MJÖG lík sumum í minni fjölskyldu....hehe nefni engin nöfn..... en hún er líka ein af þessum frægu "essum" ;)

jæja.....ekki lengra í bili....reyni að hafa ekki eins langt á milli færslna

leiter


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 17:38:37 / hafsteinn

make click

jagshemash !!

byrja hér á að koma með síðu hjá vini mínum frá kazakhstan…ég var víst búinn að lofa honum því. hann er snillingur og heitir borat, ekkert sérstakur í ensku greyið en maður verður að meta viljann :$

http://www.borat.tv/

jæja…..ég er hér einn í kotinu og er að hlusta á Þursaflokkinn…illa góðir… fanney er í “hópefli” í vinnunni. ég heyrði í henni áðan. hún var að skemmta sér konunglega ofkos. hún er algjör stuðbolti og er gjörsamlega ómissandi ef eitthvað stendur til, algjör snillingur þessi elska.  ;)

ég var að horfa á gunners vinna sheff utd. 3-0…glæsilegt hjá mínum mönnum.  annars bara heima að sötra öl og reyna massa mig upp í að færa hitt og þetta fyrir naglaherbergið. annars er ölið bara gott. 8)

fanney hefur aðallega verið í því að setja inn myndir í albúmið….ég fer að hafa mig af stað…set myndir af veiði og öðru skemmtilegu ;-)

ætla elda mér kjúllabringur í kvöld

mínir menn á sky á morgun (nfl) the rams (hrútarnir sko) hehe held þeir sökki en ætla samt að horfa á þá.

skólinn gengur ágætlega….en er samt frekar lost í þessu tölvudæmi hjá henni nikólu hvíthaus (nik whitehead) en vonandi fer það vel “actually” 8| ….heheh hún er sko bresk

ömmm….meira ? jájá…”nóg af því !!” m.a. snilldarveiðiferðin síðustu helgi…

sei yur fr ví sienna….ætla f´a mr meri bjóvr…hikk


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 12:32:43 / hafsteinn

heeeeee´s back !!!!!!

jæja jæja

Ég hef nú ekki bloggað í heilt ár. spurning um að bæta úr því. eitthvað búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. 8|

Maður er bara að byrjaður í háskóla. er í fjarnámi og tek stærðfræði og hagnýta tölvunotkun. þetta gengur ágætlega, en ég er að vísu ekki búinn að vera mjög duglegur uppá síðkastið. vonandi skánar það í kvöld því þá er fjarfundartími og ætti eitthvað að gerast þá. 8)

Er búinn að fara nokkuð að veiða í sumar, hefur að vísu ekki gengið alveg nógu vel NEMA í flókadalsánni í fljótum að sjálfsögðu. besti staðurinn. :haha:

Fanney er að fara í eitthvað vinnudæmi á lau. og ég verð einn heima, er að vísu að fara í skólann á lau. en ég verð síðan heima. ætla reyna að taka til í herb. sem fanney ætlar að nota undir neglur og reyna fara setja upp aðstöðu fyrir hana.

Hún er bara nokkuð hress en er oft þreytt. það er bara eðlilegt og ég reyni að stjana við hana eins og ég get. erum búin að kaupa hitt og þetta handa púkanum og nú bíðum við bara e. honum. það eru 3 mánuðir í áætlaðan komutíma hehe held að þetta verði mjög stríðin manneskja......allavega hoppar það og skoppar þangað til ég set hendina á magann á fanney.....þá bara neeeeiiiiiii  ég hreyfi mig bara ekki neitt !!! immitt......ég ætla reyna fá það í lið með mér og stríða fanney......það er miklu skemmtilegra  :evil:

Meira seinna

HL


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3